30.03.2007 08:18:36 / gljadis

-1

já ég veit "þið" trúið því ekki, en ég missti 1 kg frá miðvikudegi til föstudags :> Þrátt fyrir að hafa borðað pizzu í gær, enda var þetta bara ein sneið og hún hefur nú ekki mikil skaðleg áhrif þegar maður borðar ekkert annað í kvöldmat, jú kannski smá ávaxtasafa.... Var reyndar mega stolt af mér, það voru allir að éta pizzu og ég ákvað að vera ekki memm og fékk mér bara eina sneið svona rétt til að borða e-n kvöldmat

 

jæja nóg í bili

guðrún 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 19:14:57 / gljadis

matseðill

svona leit dagurinn út: ekki 100% en ástæðan er törn í skólanum! held samt að þetta sé nokkurn vegin undir kaloríumagni.......vonandi, kemur í ljós í fyrramálið :| 

8:00   cornefleks með léttsúrmjólk
12:00  tortilla kaka með skinku osti og grænmeti
16:00   hálf tebolla og coke light
18:00   nýpressaður ávaxtasafi
19:00  1 pizzasneið

 

vatnvatnvatn 


» 1 hafa sagt sína skoðun

29.03.2007 13:49:54 / gljadis

-2,7

játs á fyrstu vikunni misst mín 2,7 kg :o)

Mega ánægð með það!! Gengur allt eins og í sögu, mataræðið tipp topp, fer reyndar aldrei alveg eftir því hvað þær segja á matarplaninu, en ég skipti út dögu, borða kannski kornfleks í stað hafragrauts osfr. Núna er líka svo brjálað að gera í skólanum að ég undirbý mig ekki eins vel. 

 

Stór freisting á morgun :| Ársfundur skólafélagsins þar sem ég er víst gjaldkeri og þarf að láta sjá mig! En, vandamálið er það að það verður allt flæðandi í bjór! Ekki gott :( .... Langar notla mega á feitt djamm, en það þýðir pizzuát og þynnka = ég þyngist

Ætli ég reyni ekki bara að koma mér snemma heim að sauma eða e-ð og fer svo í ræktina á laugardaginn.. þá yrði ég allavega mega ánæð með mig :>

Núna eru aðeins 59 dagar í Kína og Spán og ef maður ætlar að láta sjá sig meðal almennings þar þá er eins gott að standa sig ;)

 

Guðrún kveður 


» 1 hafa sagt sína skoðun

26.03.2007 12:31:33 / gljadis

0,5 +

Mætti galvösk í tíma í morgun, að vana.... Þyngdist um 0,5 kg um helgina. Ég var nú ekki sérlega hissa, enda lét ég eftir um helgina, fór í partý og ætlaði að vera edrú, en ég var "plötuð" og í mig var hellt bjór .. eða svona nokkurnvegin ;)

Það var samt nokkurn vegin þess virði, enda mjög gaman, langt síðan ég hef djammað í Keflavík, og þetta var ekki síðra en síðast, allavega skemmtilegra fólk í þetta skiptið!

 

Tíminn í morgun var mjög góður, tók vel á! ég er ekki lítið stolt af mér að vera búin að mæta þrisvar í ræktina klukkan sex á morgnanna, nú eru bara 8 vikur eftir :> og vonandi 10 kg í mínus amk. 

 

Matseðill dagsins verður ca. svona:

6:00    Trópí
8:00    Létt drykkjarjógúrt, 2 jarðaber, hálfur banani
12:00   3 hrökkbrauðssneiðar, heimatilbúinn hummus (nammi góður!), salat með smá fetaosti.
15:00    2 poppkökur með léttosti og papríku, trópí.
20:00    Lagsagna eða e-n kjötréttur...
21:00    e-ð gott kvöldnasl.


» 0 hafa sagt sína skoðun

23.03.2007 09:36:16 / gljadis

Allt í sóma!

Gengur allt eins og í sögu.. fór í morgun í tíma, þetta eru yndislegir tímar og ekkert mál að vakna kl. 5:50. (Ótrúlegt að ég segi það!). En þetta er svona ekta sem ég vil, púl, en samt ekki of mikið, maður ræður vel við þetta og hlakkar mikið til næst! Líka þægilega stuttir tímar, er komin heim korter í átta og hef þá hálftíma til að taka mig til í skólann.

Steig á vigtina í annað skiptið í morgun og rúmlega 2 kg hafa flogið síðan á miðvikudag, Bara gleði :o)

Matseðillinn leit svona út í gær:
8:00 létt súrmjólk og kornfleks
11:40 Skyr.is drykkur, flatkaka með kjúlla skinku,
14:40 vínber
16:30 1 stk poppkex og perudrykkjar jógúrt (án viðbætts sykurs)
19:00 1 laxabiti, fullt af grænmeti, 2kartöflur, 1 gróft brauð

ca. 1,5-2lt vatn

Matseðill dagsins:

6:05 Trópí tríó
8:00 Kornfleks með rúsínum
hád:gróf brauðsneið með kjúllaskinku, léttosti og tómat. 1 tómatur
miðdegi: 1 mandarína
kvöld: fiskréttur, kartöflur og grænmeti
síðd.k.: ávöxtur

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

21.03.2007 11:26:09 / gljadis

TT1

Byrjaði í morgun á námskeiðum hjá JSB líkaði mjög vel við fyrsta tímann og er viss um að ég eigi eftir að klára þetta námskeið með stæl!

Vigtin sagði fáranlega mikið!! ég set inn töflu þegar smávegis er farið að líða á og ég sé fram á létting.

Hingað ætlaði ég nú aðeins að skrá æfingar plan og matseðila dagsins og kannski e-ð um hvernig gengur...

Ég fer erlendis 27. maí í 5 vikur og námskeiðið klárast 26. maí, svo ég hef 10 vikur til að taka mig verulega á! Enda hef ég þyngst heiftarlega síðustu mánuði, sem er nú ekki sniðugt! :|

 21. apríl

05:50   Tríó trópí
06:15   Leikfimi - Vatn
08:15   2 grófar brauðsneiðar með léttosti og hálfum banana. Vatn
hád.     Flatkaka með kjúklingaskinku og smá léttosti + drykkjarjógúrt
Mið.      Hálfur banani og pera
Kvö.     Skyrdrykkur + gróf brauðsneið m. eggi og gúrku

 Kem með update hvort þetta hafi gengið eftir þar sem klukkan er aðeins 10:40 og því er hád-kvöld bara planið..

 

kv. Guðrún

 


» 0 hafa sagt sína skoðun